Ellen Margrét, dóttir mín, tók þátt í undankeppni fyrir "Stora Daldansen", sem er keppni í klassískum balletsólóum og er haldin er í Svíþjóð í Maí á hverju ári. Það er Félag Íslenskra Listdansara (FÍLD) sem heldur undankeppnina á hverju ári. Af þeim 25 keppendum sem tóku þátt þá lenti Ellen mín í öðru sæti á eftir Karli Hjaltasyni sem er með henni í hóp í Listdanskóla Íslands, en einungis 1 stig af 100 var á milli þeirra. Aðrir keppendur sem lentu í 3-5 sæti voru líka allir úr Listdanskóla Íslands og er skólinn greinilega með frábæra kennslu.Til hamingju með afmælið vina.
0 comments:
Post a Comment